Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Óskar Hrafn: Leggst yfir okkur hræðsla sem við höfum ekki fundið fyrir í vetur
Frammistaðan ekki áhyggjuefni - „Skal hundur heita ef það verður skorað flottara mark í sumar“
Rúnar Páll: Óþarfa spenna hérna í lokin
Gunnar Heiðar: Vorum ekki með í fyrri hálfleik
Álitið - Hvaða lið verður spútnikliðið?
Jökull: Menn klára páskaeggin í kvöld og svo erum við klárir
Álitið - Hvaða lið veldur mestu vonbrigðum?
Hallgrímur Mar eftir að hafa byrjað á bekknum: „Hvað heldur þú?“
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Kristófer Ingi: Ekkert heyrt um samning og fókusa á að spila
Todor Hristov eftir 0-5 tap: „Aðeins dýrara lið en okkar“
Linta svekktur: Ánægður með spilamennskuna
Gylfi fékk högg og bólgnaði - „Það þarf bara að skoða það“
Alex Freyr: Draugar síðustu leikja sem koma
„Of margir sem eru spurningamerki sem er ekki gott þegar mótið er að hefjast“
Venni eftir sigur í Eyjum: Er alveg í skýjunum
Elías Már um samkeppnina: Erum tveir ólíkir framherjar og styðjum við bakið á hvor öðrum
Óli Skúla um danskan framherja: Þú ert þá að segja mér fréttir
   sun 21. júlí 2013 16:42
Brynjar Ingi Erluson
EM kvenna - Katrín Jóns: Langaði að troða ofan í þessa monthana
Kvenaboltinn
Katrín Jónsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, lék sinn síðasta landsleik í dag í 4-0 tapi fyrir Svíþjóð í 8-liða úrslitum Evrópumótsins, en hún ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn.

,,Ég er sammála þér, við fáum á okkur mark eftir þrjár mínútur og svo erum við allt í einu 3-0 undir eftir tuttugu mínútur. Eftir það þurfum við að berjast upp á við, mér fannst við ná að þjappa okkur betur saman undir lok fyrri hálfleiks," sagði Katrín.

,,Við héldum ekki nægilega vel varnarskipulagi miðað við Hollandsleikinn. Við vorum reyndar að spila við leikmenn sem eru meira hreyfanlegar en við hefðum samt getað leyst þetta betur en maður er þarna inná og þetta gerist og þetta var voðalega erfitt."

,,Kosovare Asllani var frábær í dag og maður þurfti alltaf að hafa áhyggjur af henni. Hún skapar rosalega mikið sóknarlega fyrir þær. Lotta Schelin er líka ágæt í fótbolta og mér finnst þetta klárlega besta liðið sem við höfum mætt í keppninni, betra en Þýskaland."

,,Okkur langaði virkilega að troða ofan í þessa monthana, en svo bara gerist eitthvað og við fáum á okkur mark. Því miður náðum við ekki að spila betri leik, en maður verður að muna að mótið er samt búið að vera frábært og maður reynir að sækja minningar úr fyrri leikjum."

,,Ég veit það ekki, en þeir eru stundum óþolandi!."


Henni var skipt af velli í leiknum í dag, sem var hennar síðasti landsleikur. Hún leggur þá skóna á hilluna með Umeå eftir tímabilið.

,,Þetta var síðasti landsleikurinn. Það fór ekkert í gegnum hausinn á mér, ég var alveg tóm og ég vildi bara klappa fyrir áhorfendunum sem mættu á völlinn og svo settist maður niður og maður var hálf tómur en eftir leikinn þá komu stelpurnar að og föðmuðu mig og þá komu tilfinningarnar, maður fór að tárast og svona."

,,Ég ætla að klára tímabilið með Umea og ég ætla að gera það með stæl, en þetta var síðasti landsleikurinn. Þetta verður síðasta tímabilið mitt,"
sagði hún ennfremur.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Slapp
banner