Liverpool hefur áhuga á Van de Ven - Palmer til í að spila fyrir Man Utd - Real Madrid og Man Utd sýna Neves áhuga
   fim 22. janúar 2026 15:30
Elvar Geir Magnússon
Van Dijk óánægður með spurningu til Slot: Þetta er vanvirðing
Virgil van Dijk.
Virgil van Dijk.
Mynd: EPA
Arne Slot.
Arne Slot.
Mynd: EPA
Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, segir að blaðamaðurinn sem spurði Arne Slot, stjóra liðsins, út í slúðursögur um Xabi Alonso hafi sýnt vanvirðingu.

Alonso, sem var rekinn frá Real Madrid, hefur verið nefndur í sambandi við stjórastarf Liverpool og á fréttamannafundi fékk Slot spurningu um það hvort hann hefði heyrt í Alonso.

Slot sagði að þetta væri ein skrítnasta spurning sem hann hefði fengið og reyndi svo að slá þessu upp í grín:

„Hann hringdi í mig og spurði hvað mér finnst um liðið því hann ætlar að taka við af mér eftir sex mánuði eða kannski tekur hann við á morgun," sagði Slot í gríni.

Van Dijk var ekki hrifinn af þessari spurningu og segir að blaðamaðurinn hafi sýnt dónaskap.

„Þessi spurning er vanvirðing," segir Dijk sem segir að menn eigi samt alveg skilið að fá gagnrýni.

„Þetta hefur verið erfiður kafli á tímabilinu fyrir okkur leikmenn og líka fyrir stjórann en hann hefur höndlað þetta vel."

Liverpool vann 3-0 sigur gegn Marseille í Meistaradeildinni í gær en spilamennska liðsins í ensku úrvalsdeildinni hefur verið gríðarlega misjöfn. Liðið er í fjórða sæti, fjórtán stigum frá toppliði Arsenal.


Athugasemdir
banner
banner