Á Víkingsvellinum í kvöld klukkan 19:15 fer leikur Víkings og FH fram. Nóg um að fera í Bestu Deildinni í kvöld í þessari 8.umferð.
Kristján Snær Frostason fékk að beint rautt spjald í síðasta leik hjá FH og er því í banni. Einnig er Tómas Orri Róbertsson, markahæsti leikmaður FH á tímabilinu líka í banni en vegna uppsafnaðra spjalda.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 - 0 FH
Aðeins ein breyting á liði Víkinga frá síðasta leik sem var 2-0 sigur í Vestmannaeyjum. Sölvi Geir Ottesen setur Tarik Ibrahimagic í byrjunarliðið fyrir Helga Guðjónsson sem sest á bekkinn.
Jóhannes Karl Guðjónsson þarf að hrista aðeins í hópnum vegna banna og gerir fjórar breytingar frá 2-1 tapinu gegn KA í síðustu umferð. Inn í liðið koma þeir Ísak Óli, Sverrir Páll Hjaltested, Arngrímur Bjartur og Róbert Hugi. Tobias Carlsson og Kristján Flóki byrja á bekknum.
Byrjunarlið Víkingur R.:
29. Aron Snær Friðriksson (m)
4. Oliver Ekroth (f)
6. Gunnar Vatnhamar
10. Gylfi Þór Sigurðsson
11. Daníel Hafsteinsson
19. Óskar Borgþórsson
20. Tarik Ibrahimagic
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
25. Valdimar Þór Ingimundarson
28. Elías Már Ómarsson
69. Ármann Ingi Finnbogason
Byrjunarlið FH:
1. Jökull Andrésson (m)
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Kjartan Kári Halldórsson
10. Sverrir Páll Hjaltested
19. Aron Jónsson
22. Ísak Óli Ólafsson (f)
32. Gils Gíslason
37. Baldur Kári Helgason
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson
39. Benjamín Bæring Þórsson
40. Róbert Hugi Sævarsson

