Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 20:04
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeild kvenna: ÍBV slátraði Fylki
Kvenaboltinn
Olga lagði fyrstu tvö mörkin upp fyrir Allison Clark.
Olga lagði fyrstu tvö mörkin upp fyrir Allison Clark.
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
ÍBV 5 - 0 Fylkir
1-0 Allison Patricia Clark ('12)
2-0 Allison Patricia Clark ('15)
3-0 Viktorija Zaicikova ('42)
4-0 Allison Grace Lowrey ('45)
5-0 Helena Hekla Hlynsdóttir ('83)

Lestu um leikinn: ÍBV 5 -  0 Fylkir

ÍBV tók á móti Fylki í eina leik kvöldsins í Lengjudeild kvenna og voru heimakonur í miklu stuði í fyrri hálfleik.

Allison Patricia Clark skoraði tvennu með stuttu millibili eftir stoðsendingar frá Olga Sevcova og voru Eyjakonur sterkari aðilinn.

Viktorija Zaicikova setti þriðja markið á 42. mínútu áður en Allison Grace Lowrey bætti fjórða marki leiksins við skömmu fyrir leikhlé. Hún skoraði eftir laglegt einstaklingsframtak svo staðan var 4-0 í hálfleik.

Fylkiskonur sáu ekki til sólar í leiknum og urðu lokatölur 5-0 eftir að Helena Hekla Hlynsdóttir skoraði eftir vel útfærða aukaspyrnu. Skelfilegur varnarleikur hjá Fylki.

ÍBV er á toppi Lengjudeildarinnar með 22 stig eftir 9 umferðir. Fylkir er í fallbaráttunni með 6 stig.
Athugasemdir