Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
   mið 25. júní 2025 15:30
Elvar Geir Magnússon
Búið að lækka verðmiðann á Garnacho
Mynd: EPA
Manchester United stefnir á að selja unga argentínska vængmanninn Alejandro Garnacho. Gagnrýnt var þegar hann lét mynda sig í Aston Villa-treyju með nafni Marcus Rashford.

United hefur verið með verðmiða upp á 60 milljónir punda fyrir leikmanninn, en líklegrt er að félagið sé tilbúið að selja hann fyrir um 40 milljónir.

Það myndi skrást sem hreinn hagnaður í reglur um hagnað og sjálfbærni þar sem Garnacho kom upp í gegnum unglingastarf United.

Garnacho lenti í deilum við stjóra liðsins, Rúben Amorim, seint á síðasta tímabili eftir að hafa verið skilinn út úr byrjunarliðinu í tapleik gegn Tottenham í úrslitum Evrópudeildarinnar.

Rashford, sem einnig er til sölu, hefur háar launakröfur og sem gerir lánssamning líklegan. United leitar einnig leiða til að losa sig við Jadon Sancho og Antony, en sættir sig við að þurfa hugsanlega að senda þá aftur í lán.
Athugasemdir
banner