Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
   fim 26. mars 2026 21:31
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Kom inn af bekknum og skoraði þrennu á átta mínútum - Naumt hjá Gróttu
Theodór Ingi kom inn af bekknum og setti þrennu á aðeins átta mínútum
Theodór Ingi kom inn af bekknum og setti þrennu á aðeins átta mínútum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grótta er komin áfram
Grótta er komin áfram
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Fylkir og Grótta eru komin áfram í 3. umferð Mjólkurbikars karla en Fylkismenn unnu nokkuð þægilegan sigur á KV meðan Grótta vann nauman sigur á 4. deildarliði Úlfanna.

Fylkir, sem varð Lengjubikarmeistari á dögunum, fór með þriggja marka forystu inn í hálfleikinn er liðið fékk KV í heimsókn á tekk-völlinn í Árbæ.

Benedikt Daríus Garðarsson og Bjarki Steinsen Arnarsson skoruðu með tveggja mínútna millibili áður en Guðfinnur Þór Leósson bætti við þriðja nokkrum mínútum síðar.

Á 68. mínútu kom hinn ungi og efnilegi Theodór Ingi Óskarsson inn af bekknum hjá Fylki. Sá stimplaði sig rækilega inn með þrennu á aðeins átta mínútum.

Fyrsta markið gerði hann á 73. mínútu með því að leika á tvo varnarmenn og setti hann í hornið. Annað markið kom þremur mínútum síðar og fullkomnaði hann síðan þrennuna á 81. mínútu er hann slapp inn fyrir eftir sendingu frá Nikulási Val Gunnarssyni, sem var að leggja upp annað mark sitt eftir að hafa komið inn á sem varamaður á sama tíma og Theodór.

Öruggt hjá Fylkismönnum sem eru komnir áfram í þriðju umferð bikarsins.

Grótta marði 2-1 sigur á Úlfunum á Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi.

Eftir markalausan fyrri hálfleik var það Alexander Emil Stefánsson sem kom heimamönnum í Gróttu á bragðið þegar tæpar tvær mínútur voru liðnar af síðari.

Úlfarnir voru ekki lengi að svara. Hektor Orri Ingimarsson jafnaði á 50. mínútu en þremur mínútum síðar gerði Elmar Freyr Hauksson markið sem skaut Gróttu áfram í næstu umferð.

Úrslit og markaskorarar:

Fylkir 6 - 0 KV
1-0 Benedikt Daríus Garðarsson ('30 )
2-0 Bjarki Steinsen Arnarsson ('32 )
3-0 Guðfinnur Þór Leósson ('37 )
4-0 Theodór Ingi Óskarsson ('73 )
5-0 Theodór Ingi Óskarsson ('76 )
6-0 Theodór Ingi Óskarsson ('81 )
Lestu um leikinn

Grótta 2 - 1 Úlfarnir
1-0 Alexander Emil Stefánsson ('47 )
1-1 Hektor Orri Ingimarsson ('50 )
2-1 Elmar Freyr Hauksson ('53 )

Grótta - Úlfarnir


Fylkir - KV

Slapp
Athugasemdir
banner
banner