Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   þri 24. mars 2026 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aston Villa íhugar að reyna við eitt mesta efni Evrópu
Mynd: EPA
Aston Villa er eitt af nokkrum félögum í ensku úrvalsdeildinni sem skoðar möguleikann á því að fá Ibrahim Mbaye frá PSG.

Mbaye er 18 ára sóknarmaður og er talið eitt mesta efni evrópska boltans. Hann hefur komið við sögu í 25 leikjum hjá frönsku meisturunum í vetur en oftast sem varamaður.

Það er Sky Sports sem segir frá.

Mbaye íhugar að fara í annað félag til að byrja fleiri leiki, en líkur eru á því að Villa fái samkeppni - og spurning hvort það skipti máli hvort félagið verði í Meistaradeildinni eða ekki. Mbaye var fyrr í vetur orðaður við Chelsea.

Mbaye kom í gegnum akademíuna hjá PSG og þreytti frumraun sína í ágúst 2024 þá 16 ára gamall. Hann varð í kjölfarið yngsti leikmaður til að byrja leik hjá PSG, bætti met Warren Zaire-Emery.

Mbaye var með Senegal á Afríkumótinu í vetur og skoraði í sigrinum gegn Súdan í 16-liða úrslitum keppninnar. Senegal vann úrslitaleik mótsins en var svo dæmdur ósigur þar sem liðið yfirgaf völlinn í of langan tíma á meðan leik stóð í mótmælaskyni.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 32 15 10 7 57 45 +12 55
4 Aston Villa 32 16 7 9 43 38 +5 55
5 Liverpool 32 15 7 10 52 42 +10 52
6 Chelsea 32 13 9 10 53 41 +12 48
7 Brentford 32 13 8 11 48 44 +4 47
8 Everton 32 13 8 11 39 37 +2 47
9 Brighton 32 12 10 10 43 37 +6 46
10 Sunderland 32 12 10 10 33 36 -3 46
11 Bournemouth 32 10 15 7 48 49 -1 45
12 Fulham 32 13 5 14 43 46 -3 44
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 32 12 6 14 45 47 -2 42
15 Leeds 32 8 12 12 39 49 -10 36
16 Nott. Forest 32 8 9 15 32 44 -12 33
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 32 7 9 16 40 51 -11 30
19 Burnley 32 4 8 20 33 63 -30 20
20 Wolves 32 3 8 21 24 58 -34 17
Slapp
banner