Bruno sagður falur fyrir 60 milljónir punda - Sancho aftur til Dortmund - Zidane tekur við Frökkum - De Zerbi til Spurs
banner
   þri 24. mars 2026 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Framlengir í Grindavík þrátt fyrir áhuga úr efstu deild
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Christian Bjarmi Alexadersson hefur framlengt samning sinn við Grindavík um ár og er nú samningsbundinn félginu út tímabilið 2027.

„Christian hefur fest sig í sessi sem mikilvægur hluti af liðinu og er frábær fyrirmynd innan hópsins. Við erum stolt af því að hafa hann áfram innan okkar raða en hann varð fyrir því óláni að hann handleggsbrotnaði í júní á heimavelli í leik síðasta sumar og var því lengi frá en við hlökkum til að fylgjast með honum þróast enn frekar í okkar búningi," segir í tilkynningu Grindavíkur.

Fótbolti.net fjallaði fyrr í vetur um áhuga úr Bestu deildinni á Christian. ÍBV er meðal félaga sem hafa fyglst með vinstri bakverðinum sem fæddur er 2007 og reyndi ÍBV að kaupa hann í vetur.
Athugasemdir
banner