Marseille 1 - 1 Nice
1-0 Pierre-Emile Hojbjerg ('66 )
1-1 Elye Wahi ('88 , víti)
1-0 Pierre-Emile Hojbjerg ('66 )
1-1 Elye Wahi ('88 , víti)
Útlit er fyrir að Marseille muni ekki spila í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð eftir að liðið kastaði frá sér sigrinum í 1-1 jafntefli gegn Nice í 31. umferð frönsku deildarinnar í kvöld.
Það er þó alls ekki hægt að segja að úrslit kvöldsins hafi komið þeim í þessa stöðu. Frammistaða síðustu mánaða hefur verið afleit og liðið aðeins unnið sex af fimmtán deildarleikjum sínum á árinu eftir annars góða byrjun á tímabilinu.
Marseille hélt Meistaradeildarbaráttunni á lífi er Pierre-Emile Höjberg skoraði á 66. mínútu. Þeir vissu það að sigur kæmi þeim í 55 stig, aðeins tveimur stigum á eftir Lille í baráttunni um 4. sætið, en á lokamínútunum fékk liðið á sig vítaspyrnu.
Tadjidine Mmadi steig klaufalega á Jonathan Clauss við vítateigslínuna og var réttilega dæmd vítaspyrna sem sóknarmaðurinn Elye Wahi skoraði úr.
Ömurleg úrslit fyrir Marseille sem er í 6. sæti með 53 stig, fjórum stigum frá Meistaradeildarsæti þegar þrjár umferðir eru eftir af deildinni.



