Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
   fim 14. maí 2026 20:16
Kristján Hrafn Kristjánsson
Fékk rautt í hálfleik: Mér fannst ég ekki vera of aggressívur
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Vestri sem eru ríkjandi bikarmeistarar töpuðu fyrir Gróttu 0:4 í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag.

Fótbolti.net ræddi við Daniel Badu þjálfara Vestra eftir leik.


Lestu um leikinn: Vestri 0 -  4 Grótta

0:4 tap í dag, hver eru fyrstu viðbrögð eftir leik?

"Ég er mjög svekktur." sagði Daniel Badu þjálfari Vestra eftir leik.

Heldur þú að allar breytingarnar sem þú gerðir á liðinu í dag spili inn í af hverju liðið tapaði?

"Alls ekki, liðið sýndi það í byrjun leiks að það væri nógu gott til að geta unnið leikinn."

Þórður Gunnar skoraði mark í fyrri hálfleik sem var dæmt af, hvað fannst þér um þann dóm? 

"Þú þarft að spyrja dómarann af því hvað gerðist. Þetta leit út eins og mark fyrir mér, þannig hann hefur séð eitthvað sem ég missti af."

Þú komst ekki út í seinni hálfleik, fékkst rautt spjald, fyrir hvað var það?

"Aftur þú þarft að spyrja dómarann út í það, ég einfaldlega spurði hann út í af hverju var tekið mark af mínu liði, af hverju var ekki dæmt af mark hjá Gróttu sem var augljóslega hendi og af hverju þetta var víti, sem mér fannst ekki."

"Mig langaði að vita hvað hann sá, ég var ekki aggressívur í þessu samtali. Hann hótaði að gefa mér rautt ef ég héldi áfram, á þeim tímapunkt hafði ég ekki fengið neitt svar á mínum spurningum. Ég spurði aftur og þá fékk ég ósanngjarnt rautt spjald að mínu mati."

Vestraliðið byrjaði leikinn vel, en eftir fyrstu tvö mörk Gróttu voru viðbrögð þeirra ekki nógu góð.

"Eina sem ég er ósáttur með í dag er hvernig við brugðumst við því að lenda undir, við misstum fókus sem er skiljanlegt, en topp lið sem ég held að við getum orðið en erum ekki enn bregst ekki svona við mótlæti."

Vestri mætir Ægi í fjórðu umferð Lengjudeildarinnar á Þorlákshöfn á Sunnudaginn.

"Það er frábært að fá leik strax, leikmennirnir vita að það verður erfiður leikur í erfiðum aðstæðum, en þetta er fullkomin leikur til að sýna hvað við ætlum að gera á tímabilinu."


Slapp
banner
banner
banner