Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
banner
   fim 14. maí 2026 20:18
Kristján Hrafn Kristjánsson
Rúnar Páll: Við hefðum getað skorað fleiri mörk
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Grótta sem eru nýliðar í Lengjudeildinni tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag með stórsigri á Ísafirði gegn ríkjandi bikarmeisturum Vestra.


Lestu um leikinn: Vestri 0 -  4 Grótta

Fótbolti.net ræddi við Rúnar Pál Sigmundsson, þjálfara Gróttu eftir leikinn.

"Frábær frammistaða hjá mínum mönnum, við vorum þvílíkt gíraðir í þennan leik og þetta var sannfærandi sigur. Við pressuðum þá vel, skoruðum frábær mörk og við fegnum fullt af færum, við hefðum getað skorað fleiri mörk."
"Ég er mjög ánægður með liðið og er stoltur af drengjunum.
"

Björgvin Brimi Andrésson og Mattías Kjeld voru mjög sprækir á köntunum í dag, ertu sáttur með þeirra frammistöðu?

"Ég er aðallega ánægður með frammistöðu liðsins, þetta var sigur liðsheildar og stemmingu, við vorum mjög agaðir í því sem við gerðum. Björgvin og Mattías voru góðir ásamt öllum örðum."

Grótta er nú með tvo sigra í röð í deild og bikar eftir að hafa byrjað tímabilið í Lengjudeildinni á tveimur töpum í röð.

Hvernig ætlið þið að taka þessa frammistöðu fylgja henni í næsta leik gegn Aftureldingu?

"Við fögnum í dag en á morgun byrjar undirbúningur fyrir Aftureldingu og þá þurfa menn að núllstilla sig og halda áfram, okkur veitir ekkert af góðri frammistöðu gegn Aftureldingu."

Grótta fer í Árbæinn og mæta Fylki í 8-liða úrslitunum Mjólkurbikarsins.
Slapp
banner