Viktor Freyr Sigurðsson, markvörður Fram, var einn af tveimur leikmönnum sem fékk ekki að koma við sögu í æfingaleik Íslands gegn Mexíkó í gærnótt. Hinn leikmaðurinn var Haukur Andri Haraldsson, leikmaður ÍA.
Þrátt fyrir að hafa ekki komið við sögu má segja að upprisa Viktors hafi verið ansi hröð. Hann gekk til liðs við Framara fyrir rúmu ári síðan frá Leikni sem hafði endað í 8. sæti í Lengjudeildinni tímabilið áður og er nú að koma heim úr sínu fyrsta landsliðsverkefni.
Fótbolti.net sló á þráðinn til Rúnars Kristinssonar, þjálfara Fram, í upphafi viku og ræddi við hann um Viktor.

„Það er algjörlega frábært að hann sé í hópnum. Það hefði komið mér mjög á óvart hefði hann ekki verið valinn. Að mínu mati var hann besti markvörður deildarinnar í fyrra, einn af kannski tveimur. Við vitum að Frederik Schram var frábær en hann spilaði einungis þrettán leiki. Það er erfitt að meta hann sem bestan.
Mér fannst Viktor algjörlega frábær í fyrra og átti þetta virkilega skilið. Ég er ánægður fyrir hans hönd. Þetta sýnir hversu mikið hann hefur vaxið á þessu eina ári. Frá því að hann kom úr Leikni, þrátt fyrir að hafa fengið örugglega fína þjálfun þar, þá er þetta mikið skref upp á við að fara úr fyrstu deild í efstu deild.“
Viktor var fenginn til Fram sem varamarkvörður. En eftir aðeins tvo deildarleiki sló hann Ólaf Íshólm Ólafsson úr marki Fram og hélt Viktor sæti sínu það sem eftir lifði tímabils.
„Það sýnir hversu mikið hann átti mikið inni og þurfti að komast í annað umhverfi. Með fullri virðingu við Leikni að þá er liðið hjá Fram örlítið betra og með fleiri betri leikmenn í liðinu sem gerir æfingarnar erfiðari fyrir markmenn.
Skotin og stöðurnar sem þú færð á þig eru erfiðari í efstu deild samanborið við í fyrstu deild. Þú þarft að koma leikmönnum í betra lið til þess að þeir verði betri. Þetta var gott skref hjá honum og á góðum tímapunkti fyrir hann. Hann hefur nýtt þetta skref til hins ýtrasta og bætt sig gríðarlega. Vonandi heldur hann áfram að bæta sig því ég held að hann eigi nóg inni á tanknum til að verða betri.“
Athugasemdir