Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 27. apríl 2026 18:27
Viktor Ingi Valgarðsson
Byrjunarlið Breiðabliks og Þórs: Mættur til baka eftir veikindi og Ágúst Eðvald byrjar gegn Blikum
Ágúst Orri aftur í byrjunarliðið eftir veikindi
Ágúst Orri aftur í byrjunarliðið eftir veikindi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Eðvald þekkir vel til Blika
Ágúst Eðvald þekkir vel til Blika
Mynd: Þór

Klukkan 19:15 á Kópavogsvelli tekur Breiðablik á móti Þór í 4.umferð í Bestu Deildinni. 

Breiðablik er með fimm stig komandi í leikinn, ennþá taplausir. Einu sæti fyrir ofan  þá er einmitt Þór, sem sótti annan sigur sinn á tímabilinu í síðustu umferð og því með sex stig fyrir leik kvöldsins.


Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  0 Þór

Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks gerir tvær breytingar á sínu byrjunarliði í dag. Inn koma Ágúst Orri og Kristinn Steindórsson. Ágúst Orri var ekki með liðinu í síðasta leik gegn Keflavík vegna veikinda. Jónatan Guðni fer á bekkinn í stað hans en síðan er Arnór Gauti sem er ekki í hóp í dag og Kristinn Steindórsson byrjar.

Siggi Höskulds þjálfari Þórs gerir einungis eina breytingu frá sigrinum gegn Fram í síðustu umferð. Ágúst Eðvald Hlynsson kemur í byrjunarliðið fyrir Atla Sigurjónsson sem byrjar á bekknum. Ágúst Eðvald eflaust spenntur að fá að byrja gegn gömlu félugum sínum


Byrjunarlið Breiðablik:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason
5. Ívar Örn Árnason
8. Viktor Karl Einarsson (f)
9. Óli Valur Ómarsson
10. Kristinn Steindórsson
15. Ágúst Orri Þorsteinsson
17. Valgeir Valgeirsson
18. Davíð Ingvarsson
23. Kristófer Ingi Kristinsson
30. Andri Rafn Yeoman

Byrjunarlið Þór :
1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
5. Yann Emmanuel Affi
8. Einar Freyr Halldórsson
9. Sebastian Haugland
11. Isaac Atanga
15. Kristófer Kristjánsson
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
18. Sverrir Páll Ingason
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
25. Christian Greko Jakobsen
Slapp
banner
banner
banner