Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
   lau 28. febrúar 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Vilja ekki selja Griezmann á miðju tímabili
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Bandaríska félagið Orlando City FC hefur mikinn áhuga á að kaupa Antoine Griezmann úr röðum spænska stórveldisins Atlético Madrid.

Griezmann hefur einnig mikinn áhuga á að flytja til Bandaríkjanna og lítur á þetta sem fullkomna tímasetningu, enda verður hann 35 ára gamall í mars.

Griezmann er enn mikilvægur hlekkur í sterku liði Atlético þrátt fyrir hækkandi aldur og er með tæplega eitt og hálft ár eftir af samningi við félagið.

Félagaskiptagluggi MLS deildarinnar er opinn þar til í seinni hluta mars og vill Orlando ganga frá kaupunum núna frekar heldur en í júlí þegar glugginn opnar aftur.

Atlético vill hins vegar ekki missa Griezmann á mikilvægum tímapunkti þar sem liðið er enn með í Meistaradeild Evrópu og að berjast um meistaradeildarsæti í spænsku deildinni.

Griezmann er búinn að skora 12 mörk og gefa 2 stoðsendingar í 36 leikjum það sem af er tímabils. Hann kom að 82 mörkum í 137 landsleikjum og vann til verðlauna á einum áratugi með ógnarsterku landsliði Frakklands.

   24.02.2026 07:00
Bandarískt félag reynir að kaupa Griezmann

Athugasemdir
banner
banner
banner