Oliver Heiðarsson var besti maður Eyjamanna í dag er liðið vann KA, 2-0, í Bestu deild karla á Hásteinsvelli.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 0 KA
Oliver lagði upp fyrra markið fyrir Bjarka Björn Gunnarsson og skoraði síðan annað markið þremur mínútum síðar eftir glæsilegan sprett.
Þetta var annað mark hans í Bestu deildinni á tímabilinu og var það mikill léttir að skora í fyrsta sinn síðan í lok apríl.
„Ógeðslega glaður og loksins náði ég að skora mark eftir nokkuð mörg færi, en bara ógeðslega góð tilfinning og gaman að vinna heima,“ sagði Oliver við Fótbolta.net.
„Ég sá að markmaðurinn var aðeins að svindla, ætlaði að taka fyrirgjöfina, þannig ég setti hann bara í netið.“
Oliver er ánægður í Eyjum og þakkar Eyjamönnum sérstaklega fyrir móttökurnar.
„Gæti ekki verið betri. Geggjaður hópur, geggjað samfélag og búið að taka vel á móti mér. Ekki yfir neinu að kvarta og gæti ekki verið sáttari.“
Athugasemdir






















