„Þetta var flottur leikur og við spiluðum vel," sagði Emil Hallfreðsson við Fótbolta.net eftir 2-1 sigurinn á Grikkjum í kvöld.
Emil átti skot í slá úr aukaspyrnu snemma leiks áður en hann fékk á sig vítaspyrnu þegar hann tæklaði Vassilis Torosidis klaufalega niður.
Emil átti skot í slá úr aukaspyrnu snemma leiks áður en hann fékk á sig vítaspyrnu þegar hann tæklaði Vassilis Torosidis klaufalega niður.
Lestu um leikinn: Grikkland 2 - 3 Ísland
„Ég var næstum búinn að skora rétt áður en ég fékk vítið dæmt á mig en svona er fótboltinn. Maður heldur áfram," sagði Emil sem gat lítið kvartað yfir vítaspyrnudóminum.
„Ég tek þetta algjörlega á mig. Þetta var klaufaskapur en þetta er ekki fyrsta vítið sem gerist svona."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























