„Það er ekki hægt annað en að vera sáttur. Flott frammistaða í marga staði og ofan á það flottur stuðningur eins og svo oft áður." Segir Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar eftir 5-0 sigur á FH.
Lestu um leikinn: Stjarnan 5 - 0 FH
Stjarnan komst snemma 2-0 yfir í dag og gerðu leikinn auðveldan fyrir sig.
„Það breytir miklu að komast yfir snemma. Það gerir okkur auðveldara að gera hluti sem við viljum gera. Ísak gerir vel í þessum mörkum en það gerðu fleiri. Örvar með stórkostlega sendingu til dæmis."
Stjarnan hélt áfram að stjórna leiknum og sækja þrátt fyrir mörkin sem komu snemma.
„Ég var líka sáttur að víð héldum áfram að verjast og verjast. Þeir skapa sér samt eitt gott færi og við þurfum að skoða það. Ég er samt sáttur með sóknarleikinn og varnarleikinn."
Löng pása framundan hjá Stjörnunni. Jökull var spurður hvernig hann sér það fyrir sér.
„Við nýtum hana í að vinna í að verða betri. Það er eitthvað sem við getum gert betur í dag. Fullt sem við getum gert betur en við njótum þess að spila og hafa gaman.
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir























