Liverpool vill Olise - Sancho eða Rashford - Stór nöfn orðuð við Arsenal
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vonandi virka markaskórnir í kvöld
Með landsliðið í huga þegar hann færði sig um set - „Kominn í frekar lélega stöðu“
Elías Rafn: Það er draumur allra að spila í Premier League
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor Bjarki: Hef trú á að við getum unnið Frakkland
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
„Tel mig vera þessi leiðtogi sem fólkið þarf“
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
Júlíus Mar: Hausinn vildi fara út
„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“
„Enginn sem óskar sér þess að mæta Víkingi“
Gæðastjórinn ætlar að reikna út xF
banner
   fim 30. maí 2019 19:50
Aron Elvar Finnsson
Palli Gísla: Var hundfúll síðast og við getum tífaldað það núna
Palli var svekktur að leikslokum
Palli var svekktur að leikslokum
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
"Ég var hundfúll að fá ekki 3 stig síðast og við getum tífaldað það eftir þennan leik," sagði svekktur Páll Viðar Gíslason þjálfari Magna eftir 1-1 jafntefli við Hauka í Inkasso deildinni í dag.

Lestu um leikinn: Magni 1 -  1 Haukar

Bjarni Aðalsteinsson fékk að líta rauða spjaldið nokkrum sekúndum áður en Haukar jöfnuðu leikinn í restina. 
"Fótboltinn er svona, stundum hrekkur þetta og í þetta skiptið fengum við þetta mark á okkur. Kannski vorum við klaufar að vera ekki búnir að loka þessum leik fyrr, en margt jákvætt. Eitt stig er rýr uppskera eftir þennan leik."

"Við erum bara ekki að uppskera stigalega eins og við teljum okkur hafa burði til. En ég tek ekkert af því að menn séu ekki að leggja sig fram, annað væri reyndar mjög skrýtið."

"Við verðum bara að sleikja sárin í kvöld og halda áfram. Það er búið að vera stígandi í þessu hjá okkur en það sést nú ekki mikið á töflunni. Þetta er erfitt prógram sem við eigum í hverjum einasta leik og það eru allir búnir að átta sig á því held ég. Þetta verður slagur áfram og það verður það líka í Mosfellsbænum á föstudaginn." 


Viðtalið við Palla má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Athugasemdir
banner