„Ég sá að FH-ÍA er 29. maí en þá verðum við í landsliðinu úti í Japan, þannig ég missi af honum. Ég fylgist með honum úr öðru tímabelti. Ég er spenntur fyrir að sjá bæði FH og ÍA,“ sagði landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson aðspurður um Bestu deildina.
Fótbolti.net ræddi við Ísak en hann er staddur úti í Kanada með landsliðinu. Liðið mætir Haítí í vináttuleik síðdegis í dag.
Það er greinilega eftirvænting hjá Ísaki eftir Bestu deildinni. Hann er uppalinn Skagamaður en pabbi Ísaks, Jóhannes Karl Guðjónsson, tók við stjórnartaumunum á FH fyrr í vetur. Sjálfur segir hann spenntur fyrir komandi tímum hjá báðum félögum.

„ÍA er auðvitað búið að fá mikið af stórum póstum inn í liðið og FH er að byrja sína vegferð. Maður þarf að byrja svona ef maður ætlar að byggja upp stórlið.
Eins og Arnar gerði með Víking; Hann spilaði með fullt af ungum leikmönnum og var að þróa sinn leikstíl. Á endanum eftir þrjú, fjögur ár getur liðið orðið stórveldi aftur. Mér líst mjög vel á þessa stefnu sem FH er með,“ sagði Ísak að lokum.
Athugasemdir