Spænski sóknartengiliðurinn Isco hefur verið valinn besti leikmaður Sambandsdeildar Evrópu þetta tímabilið en þetta kemur fram í tilkynningu frá UEFA í dag.
Isco kom að fimm mörkum er Real Betis fór alla leið í úrslitaleik keppninnar.
Betis laut í lægra haldi fyrir Chelsea, 4-1, í úrslitaleiknum sem fór fram í Wroclaw í Póllandi.
Tímabilið hefur verið eitt það besta hjá Spánverjanum á ferlinum en hann kom að 25 mörkum í 22 leikjum í La Liga.
Tæknileg nefnd Sambandsdeildarinnar valdi Isco besta leikmann keppninnar og hafði hann þar betur gegn leikmönnum á borð við Enzo Fernandez og Tosin Adarabioyo.
Isco er 33 ára gamall og var að klára annað tímabil sitt með Betis en hann kom til liðsins frá Sevilla árið 2023.
???? UEFA Conference League Player of the Season: Isco! ??????#UECL @RealBetis pic.twitter.com/MPSmn5DB3x
— UEFA Conference League (@Conf_League) May 29, 2025
Athugasemdir