Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið PSG og Inter: Úrslitastund í Munchen
Mynd: EPA
Það fer að koma að þessu, úrslitaleikur Meistaradeildarinnar er framundan en hann fer fram í Munchen. Byrjunarliðin eru komin inn.

PSG lagði Arsenal í undanúrslitum Luis Enrique bekkjaði Ousmane Dembele fyrir seinni undanúrslitaleikinn en hann er kominn aftur inn fyrir Bradley Barcola. Hinn 19 ára gamli Deire Doue er frammi ásamt Dembele og Khvicha Kvaratskhelia.

Það er einnig ein breyting á liði Inter sem vann Barcelona eftir framlengingu í undanúrslitum. Benjamin Pavard kemur inn fyrir Yann Bisseck.

Byrjunarlið PSG: Donnarumma, Hakimi, Marquinhos, Pacho, Nuno Mendes, João Neves, Vitinha, Fabián Ruiz, Kvaratskhelia, Dembele, Doue

Byrjunarlið Inter: Sommer, Pavard, Acerbi, Bastoni, Dumfries, Barella, Calhanoglu, Mkhitaryan, Dimarco, Lautaro Martinez, Thuram
Athugasemdir
banner