Marco Silva, stjóri Fulham á Englandi, er sagður líklegastur til að taka við ítalska liðinu Juventus. Þetta kemur fram á Sky Sports:
Juventus lét Thiago Motta taka poka sinn undir lok síðasta tímabil og stýrði Igor Tudor liðinu í síðustu leikjunum.
Félagið er í leit að nýjum þjálfara fyrir næsta tímabil og er Silva nú talinn leiða kapphlaupið eftir að hafa náð góðum árangri með Fulham síðustu ár.
Sky Sports segir að áhugi Juventus á Silva sé raunverulegur og að það telji hann vera góðan kost í að stýra liðinu á næstu leiktíð, en Juventus snýr aftur í Meistaradeildina eftir að hafa lent í 4. sæti deildarinnar.
Félagið hafði einnig áhuga á Gian Piero Gasperini og Antonio Conte, en Gasperini hefur samþykkt að taka við Roma og þá verður Conte áfram hjá Ítalíumeisturum Napoli.
Juventus vill væntanlega ganga frá ráðningu á nýjum þjálfara á næstu tveimur vikum eða fyrir HM félagsliða sem hefst 14. júní.
Athugasemdir