Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 14:30
Brynjar Ingi Erluson
Sneijder segir Inter stærra og sterkara en fyrir tveimur árum
Wesley Sneijder varð Evrópumeistari með Inter árið 2010
Wesley Sneijder varð Evrópumeistari með Inter árið 2010
Mynd: EPA
Wesley Sneijder, fyrrum leikmaður Inter, segir liðið vera töluvert betra í dag en það var fyrir tveimur árum þegar það tapaði fyrir Manchester City í úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Inter mætir Paris Saint-Germain í úrslitum keppninnar í kvöld.

Þetta verður annað sinn á síðustu tveimur árum sem Inter kemst í úrslit, en í þetta sinn er staðan öðruvísi.

„Ég var á úrslitaleiknum í Istanbúl fyrir tveimur árum, en staðan er allt önnur í dag,“ sagði Sneijder við Gazzetta dello Sport.

„Það er ekki bara vegna þess að það er enginn augljós sigurvegari eða af því PSG er ekki með jafn mikil yfirráð og Man City var með árið 2023, heldur af því Inter er allt öðruvísi en þá. Þeir eru stærri, sterkari og með meiri vitund. Þeir hafa klárað langa vegferð og eru mun þroskaðri í varnarleiknum.“

„Jafnvel töp, eins og það sem átti sér stað fyrir tveimur árum, hafa hjálpað þeim að fullkomna leik sinn.“

Sneijder er þá á því að svekkjandi niðurstaða í titilbaráttunni á Ítalíu eigi eftir að reynast þeim vel í úrslitaleiknum.

„Ég er sannfærður um að það verði hvatning fyrir liðið að bregðast strax við eftir að hafa tapað titilbaráttunni. Það er og verður auðvitað mikil eftirsjá því það var ekki mikið meira sem liðið gat gert til að vinna deildina.“

„Ekki samt biðja mig um að spá fyrir um leikinn því þeir sem gera það gera yfirleitt mistök! Ég hef samt mikla trú á þessu liði og Simone Inzaghi. Við vonum samt að við munum muna eftir þessum laugardegi til lengri tíma,“
sagði Sneijder.

Sneijder var hluti af mögnuðu liði Inter sem vann þrennuna árið 2010. Inter varð deildar- og bikarmeistari ásamt því að klára tímabilið með Meistaradeildartitli.
Athugasemdir
banner