Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 13:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Meiri trú á PSG í kvöld
Nær Yann Sommer að loka á frönsku vélina?
Nær Yann Sommer að loka á frönsku vélina?
Mynd: EPA
Klukkan 19:00 fer fram úrslitaleikur Meistaradeildarinnar, PSG og Inter mætast á Allianz Arena í München. Þeir Guðmundur Benediktsson og Kjartan Henry Finnbogason lýsa leiknum beint frá vellinum. Upphitun Stöð 2 Sport 2 fyrir leikinn hefst klukkan 18:10.

Það er áhugavert að skoða stuðlana fyrir leikinn en veðbankar hafa meiri trú á því að PSG vinni leikinn. Inter er með talsvert meiri reynslu í sínum leikmannahópi, liðið var í úrslitum keppninnar 2023 og tapaði þá naumlega gegn Manchester City. Líklegt er að átta leikmenn sem spiluðu þá með Inter verði líka í byrjunarliðinu í kvöld.

PSG var síðast í úrslitunum 2020 en tapaði þá gegn Bayern München. Presnel Kimpembe og Marquinhos eru einu leikmenn PSG sem eru eftir frá þeim leik.

Á veðbankanum Betsson er stuðullinn á því að PSG vinni í venjulegum leiktíma 2,15 og stuðulinn 1,62 á því að PSG lyfti bikarnum, en þá bætist við sá möguleiki að liðið vinni í framlengingu eða vítaspyrnukeppni.

Stuðullinn á sigri Inter í venjulegum leiktíma er 3,50 á Betsson og stuðullinn er 2,3 á því að Inter vinni leikinn, sama hvort það verði í venjulegum leiktíma, framlengingu eða vítaspyrnukeppni.

PSG hefur átt mjög gott tímabil, liðið var reyndar mjög hikstandi fyrri hluta mótsins í Meistaradeildinni en hefur verið besta lið keppninnar eftir áramót. Inter hefur sýnt mikla seiglu og vann liðið ótrúlegan sigur gegn Barcelona í undanúrslitunum.
Athugasemdir
banner
banner