Spænski markvörðurinn Joan Garcia er á leið til Barcelona frá nágrönnum þeirra í Espanyol en þetta segir ítalski blaðamaðurinn Fabrizio Romano í dag.
Garcia er 24 ára gamall og var með bestu markvörðum La Liga á tímabilinu.
Barcelona ætlar að virkja 25 milljóna evra kaupákvæði í samningi hans og lána hann út eitt tímabil.
Samkvæmt Romano er stutt í að Barcelona og Garcia nái samkomulagi um langtímasamning, en það má gera ráð fyrir að það liggi fyrir á næstu dögum.
Mörg félög hafa sýnt því áhuga á að fá hann síðustu mánuði og má þar nefna ensku úrvalsdeildarfélögin Arsenal og Newcastle United.
Garcia hélt átta sinnum hreinu og fékk á sig 51 mark er Espanyol hafnaði í 14. sæti deildarinnar.
Athugasemdir