Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Meistaraspáin - Sénsar teknir á stóra sviðinu
Lyftir Lautaro bikarnum með stóru eyrun?
Lyftir Lautaro bikarnum með stóru eyrun?
Mynd: EPA
Alli Jói og Aron Baldvin eru sérfræðingarnir í ár.
Alli Jói og Aron Baldvin eru sérfræðingarnir í ár.
Mynd: Fótbolti.net
Mynd: EPA
Kvaratskhelia getur unnið fernuna á morgun; ítalska meistaratitilinn, franska meistaratitilinn, franska bikarinn og Meistaradeildina.
Kvaratskhelia getur unnið fernuna á morgun; ítalska meistaratitilinn, franska meistaratitilinn, franska bikarinn og Meistaradeildina.
Mynd: EPA
Klukkan 19:00 á Allianz Arena í München mætast PSG og Inter í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Inter sló út Barcelona eftir rosalegt einvígi í undanúrslitunum og PSG sló út Arsenal.

PSG getur fullkomnað þrennuna með því að sigra í kvöld á meðan Inter getur bjargað tímabilinu eftir að hafa misst af Ítalíumeistaratitlinum.

Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Alli Jói, þjálfari Völsungs, og Aron Baldvin Þórðarson, aðstoðarþjálfari Víkings. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.

Fótbolti.net er með forystuna fyrir lokaleik tímabilins og sérfræðingarnir þurfa að taka sénsa til að vinna keppnina.

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson

PSG 1 - 2 Inter
Það er eitthvað við Interævintýrið sem segir manni að þeir geti ekki tapað. Einhvern veginn hafa þeir fundið leiðir til að skora mörk þegar þeir þurfa þess og þannig unnið einvígi. Voru nálægt þessu fyrir tveimur árum, nú taka þeir þetta yfir línuna.

Aron Baldvin Þórðarson

PSG 2 - 1 Inter
Hausinn segir Inter en hjartað PSG. Höldum með skemmtilegri fótbolta og Parísarmenn ná loksins markmiðinu sinu. Kvaradona setur winnerinn rétt áður en hann lendir í hrömmunum á Gunnari Vatnhammar í landsleikjahléinu.

Fótbolti.net - Aksentije Milisic

PSG 1 - 1 Inter (Inter vinnur eftir vító)
Leikur ársins þar sem tvö frábær lið með ólíka eiginleika mætast.

Þegar það kemur að taktík er enginn betri en Ítalinn. Inter kemst yfir með marki eftir fast leikatriði og reyna Inzaghi og hans menn að hanga á því marki eins lengi og þeir geta.

Með Sommer í búrinu og Acerbi í hjartanu mun það duga lengi en allt kemur fyrir ekki og nær PSG að tryggja sér framlenginguna með mikinn meðbyr.

Þegar flestir halda að PSG klári þetta í framlengingunni þá verjast Inter menn eins og ljón, ellefu menn bakvið boltann.

Leikurinn endar í vítaspyrnukeppni og þar verða öll augu á Donnarumma en því miður fyrir Parísarbúa þá ver hann ekki tuðru að þessu sinni. Inter verður Evrópumeistari og hinn huggulegi Lautaro Martínez lyftir þeim stóra!

Staðan í heildarkeppninni:
Alli Jói - 19
Aron Baldvin - 18
Fótbolti.net - 21
Athugasemdir
banner
banner