Íslenska U21 árs landsliðið tók þátt á EM í Danmörku í júní síðastliðnum.
Erpur Eyvindarson og Þorsteinn Lár Ragnarsson úr XXX Rottweiler hundum kíktu út til Damerkur og tóku upp nokkur innslög fyrir Fótbolta.net.
Nokkur innslög hafa nú þegar verið birt en þó eru ennþá til innslög sem hafa ekki birst á síðunni.
Hér að ofan má sjá innslag þar sem rætt er við Aron Einar Gunnarsson eftir rauða spjaldið sem hann fékk gegn Hvít-Rússum.
Þá stýrir Erpur keppni þar sem Þorsteinn Lár keppir við Jan Christiansen í að halda bolta á lofti.
Sjá einnig:
Íslendingar á EM: Stemningin í Danmörku
Íslendingar á EM: Erpur tekur snúning í Danmörku
Íslendingar á EM: Umbi Arons og syngjandi Kani






















