EM U21 árs landsliða fór fram í Danmörku í síðasta mánuði.
Erpur Eyvindarson og Þorsteinn Lár Ragnarsson úr XXX Rottweiler hundum kíktu út til Damerkur og tóku upp nokkur innslög fyrir Fótbolta.net.
Afraksturinn mun birtast á síðunni í sumar og í dag er komið að þriðja innslaginu.
Þar er umboðsmaður Arons Einars Gunnarssonar og Grétars Rafns Steinssonar meðal annars tekinn tali og Erpur ræðir við Bandaríkjamann sem tekur síðan lagið.
Þar er rætt við íslenska stuðningsmenn en innslagið má sjá hér að ofan.
Sjá einnig:
Íslendingar á EM: Stemningin í Danmörku
Íslendingar á EM: Erpur tekur snúning í Danmörku





















