Magnús Már Einarsson skrifar frá Englandi
Óvíst er hvort Aron Einar Gunnarsson verði með íslenska landsliðinu í vináttuleik gegn Svartfellingum á miðvikudag. Aron Einar meiddist á kálfa í framlengingu í úrslitaleik enska deildagbikarsins í gær þar sem Cardiff tapaði gegn Liverpool.
,,Það er aðeins aftan í kálfanum eftir að hafa spilað 120 mínútur. Ég held að þeir (Cardiff) séu ekkert sáttir við að maður sé að fara en hvað gerir maður ekki fyrir Ísland," sagði Aron Einar við Fótbolta.net í gærkvöldi.
Lars Lagerback, landsliðsþjálfari Íslands, kallaði í gær Pálma Rafn Pálmason inn í landsliðshópinn til öryggis en Aron Einar mun sjálfur fara til Svartfjallalands í dag og hitta Lars.
,,Maður vill fá að kynnast því hvernig hann vinnur. Þetta er fyrsti leikur sem ég get farið í og maður vill fá að mæta og sjá hvernig þetta er. Kannski næ ég 45 mínútum, það fer eftir því hvernig ég verð í fyrramálið (í dag) hvort ég verði stífur eða ekki."
Lagerback stýrði íslenska landsliðinu í fyrsta skipti gegn Japan á föstudag en á miðvikudag verður fyrsti leikurinn þar sem hann getur valið sitt sterkasta lið. Aroni líst vel á nýja landsliðsþjálfarann.
,,Ég talaði við Arnór Smára í gær og hann sagði að þetta hefði verið mjög fínt. Þetta verðu bara gaman fyrir okkur að fá eitthvað nýtt og öðruvísí í þetta. Þetta verður mjög fínt held ég."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















