
Á föstudagskvöld, klukkan 18:45 að íslenskum tíma, mun íslenska landsliðið leika vináttulandsleik gegn Skotlandi á Hampden Park í Glasgow. Eftir þann leik verður haldið til Norður-Írlands og leikið gegn heimamönnum næsta þriðjudag.
Íslenski landsliðshópurinn kom saman til æfinga í gær en meðal leikmanna í hópnum er varnarmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon. Hörður er kominn aftur af stað eftir erfið meiðsli en hann hefur ekki spilað landsleik síðan í september 2023.
Íslenski landsliðshópurinn kom saman til æfinga í gær en meðal leikmanna í hópnum er varnarmaðurinn Hörður Björgvin Magnússon. Hörður er kominn aftur af stað eftir erfið meiðsli en hann hefur ekki spilað landsleik síðan í september 2023.
Sævar Atli Magnússon og Dagur Dan Þórhallsson voru kallaðir inn í hópinn vegna meiðsla Bjarka Steins Bjarkasonar og Arnórs Sigurðssonar.
Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson er ekki með í þessu verkefni vegna meiðsla og ef horft er á síðasta byrjunarlið, í tapinu gegn Kósovó í umspili Þjóðadeildarinnar, er Valgeir Lunddal Friðriksson ekki valinn að þessu sinni.
Komandi leikir eru fyrstu vináttuleikir íslenska liðsins undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar, sem tók við liðinu í byrjun árs. Ísland býr sig undir undankeppni HM sem fer fram í byrjun september en strákarnir okkar eru með Frakklandi, Úkraínu og Aserbaídsjan í riðli. Sigurliðið fer beint á HM en liðið í öðru sæti í umspil.
„Ég vil sjá framfarir að því leyti á þá vegu að leikmenn skilji betur kerfið okkar. Við fáum þennan glugga núna til að fullkomna skilning manna á þessu kerfi. Það eru fáar æfingar og fáir fundir og menn þurfa að vera með einbeitinguna í lagi. Auðvitað viljum við ná í úrslit og fá sjálfstraust inn í hópinn en helst vil ég sjá bætingu," sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari þegar hann var spurður að því hvað hann vildi fá út úr þessum glugga.
Ísland hefur sex sinnum áður mætt bæði Skotlandi og Norður-Írlandi. Skotar hafa unnið alla sex leikina gegn íslenska liðinu, en fjórum sinnum hefur Ísland fagnað sigri gegn Norður-Írum, sem hafa unnið tvo leiki.
Fótbolti.net er í Skotlandi og seinna í dag heyrum við í nokkrum leikmönnum í hópnum.
Svona er hópurinn:
Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylland - 6 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 19 leikir
Anton Ari Einarsson - Breiðablik - 2 leikir
Guðlaugur Victor Pálsson - Plymouth Argyle F.C. - 48 leikir, 2 mörk
Dagur Dan Þórhallsson - Orlando City - 6 leikir
Aron Einar Gunnarsson - Al-Gharafa - 106 leikir, 5 mörk
Sverrir Ingi Ingason - Panathinaikos F.C. - 57 leikir, 3 mörk
Daníel Leó Grétarsson - SonderjyskE - 22 leikir
Hörður Björgvin Magnússon - Panathinaikos F.C. - 49 leikir, 2 mörk
Logi Tómasson - Strömsgodset - 9 leikir, 1 mark
Mikael Egill Ellertsson - Venezia FC - 20 leikir, 1 mark
Ísak Bergmann Jóhannesson - Köln - 33 leikir, 4 mörk
Arnór Ingvi Traustason - IFK Norrköping - 65 leikir, 6 mörk
Þórir Jóhann Helgason - U.S. Lecce - 18 leikir, 2 mörk
Stefán Teitur Þórðarson - Preston North End F.C. - 28 leikir, 1 mark
Mikael Anderson - AGF - 31 leikur, 2 mörk
Jóhann Berg Guðmundsson - Al-Orobah - 99 leikir, 8 mörk
Kristian Nökkvi Hlynsson - Sparta Rotterdam - 3 leikir
Willum Þór Willumsson - Birmingham City F.C. - 16 leikir
Jón Dagur Þorsteinsson - Hertha BSC - 44 leikir, 6 mörk
Sævar Atli Magnússon - Lyngby - 5 leikir
Hákon Arnar Haraldsson - LOSC Lille - 20 leikir, 3 mörk
Andri Lucas Guðjohnsen - K.A.A. Gent - 32 leikir, 8 mörk
Albert Guðmundsson - ACF Fiorentina - 39 leikir, 10 mörk
Athugasemdir