Sögulegur sigur!
Stúlknalandslið kvenna U15 og yngri valtaði yfir lið Hong Kong á æfingamóti í Víetnam í dag. Leikurinn endaði með 8-0 sigri íslenska liðsins.
Snædís María Jörundsdóttir skoraði þrjú mörk og þær Hildur Björk Búadóttir, Kara Petra Aradóttir, Írena Héðinsdóttir Gonzalez, Þórdís Katla Sigurðardóttir og Sara Dögg Ásþórsdóttir skoruðu sitt markið hvert.
Þetta var sögulegur sigur í ljósi þess að þetta var fyrsti leikurinn sem U15 landslið kvenna spilar og í fyrsta sinn sem íslenskt landslið spilar í Víetnam.
Ísland mætir næst Mjanmar á þriðjudaginn og hefst sá leikur kl. 09:00 að íslenskum tíma.
Byrjunarlið Íslands
Aldís Guðlaugsdóttir (M)
Birna Kristín Björnsdóttir
Viktoría Diljá Halldórsdóttir
Mikaela Nótt Pétursdóttir
Hildur Björk Búadóttir
Sara Dögg Ásþórsdóttir (F)
Amelía Rún Fjeldsted
Ísfold Marý Sigtryggsdóttir
Snædís María Jörundsdóttir
Þórdís Katla Sigurðardóttir
Berglind Þrastardóttir
Hér í spilaranum að ofan má sjá mörkin úr leiknum.
Athugasemdir























