Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   mán 23. mars 2026 13:52
Kári Snorrason
Birkir Már: Hefði sagt takk en nei takk væri hann ekki þarna
Bræðurnir Birkir Már og Aron Elí Sævarssynir.
Bræðurnir Birkir Már og Aron Elí Sævarssynir.
Mynd: Afturelding
Birkir spilaði með Val 2024.
Birkir spilaði með Val 2024.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það voru óvænt tíðindi úr Mosfellsbæ í gærdag þegar Birkir Már Sævarsson var tilkynntur sem nýr leikmaður Aftureldingar.

Birkir, sem er 41 árs, gengur til liðs við félagið eftir að hafa æft og spilað með KH í vetur. Í Aftureldingu mun Birkir spila ásamt litla bróður sínum, Aroni Elí Sævarssyni, fyrirliða liðsins.

Fótbolti.net ræddi við Birki um skiptin í dag.

„Þetta bar nokkuð snöggt að. Ég var alls ekki með nein plön um það að spila með einhverju öðru liði en KH í sumar. Þeir lenda í meiðslum í varnarlínunni. Þeir ákváðu að tékka á mér seint í síðustu viku. Þeir náðu að tala mig til og sannfæra mig um að þetta væri síðasti sénsinn til að spila með litla bróður mínum til dæmis.

Svo hef ég fylgst með Aftureldingu síðustu ár út af litla bróður. Eftir því sem ég talaði oftar við þá varð þetta meira spennandi. Ég tók tvo daga til að ákveða mig og skrifaði undir hjá þeim.“


Þurftiru mikla sannfæringu?
„Já, í rauninni þurfti að sannfæra mig mikið. Ég er yfirleitt laus á kvöldin og um helgar núna. Var bara með KH og gat aðeins stjórnað því hvernig ég æfði þar. Ég er náttúrulega orðinn frekar gamall, kominn í vinnu og er að njóta með fjölskyldunni.

Þetta er smá breyting og það þurfti að sannfæra mig svolítið. Ég var búinn að ákveða að ég ætlaði ekki að spila aftur í elítufótbolta. En eins og ég segi að litli bróðir sé þarna og við fáum loksins tækifæri til að spila saman og gleðja fjölskylduna aðeins. Það hafði stór áhrif á ákvörðunina.

Það var trompið sem þeir gátu boðið upp á. Ef að hann hefði ekki verið þarna hefði ég sagt takk en nei takk. En af því að hann er þarna og við höfum ekki fengið tækifærið að spila saman áður þá var þetta það sem gerði útslagið.“


Slapp
banner
banner