„Þetta var góður sigur og við erum þokkalega sáttir. Leikurinn var ansi kaflaskiptur," sagði Freyr Alexandersson, þjálfari Leiknis, eftir 3-1 sigurinn gegn Haukum í Lengjubikarnum.
„Eftir 20 mínútur vorum við búnir að fá jafnmörg færi á okkur og í síðustu 4-5 leikjum. Ótrúlega slakt. Engu að síður náðum við að redda okkur og náum yfirhöndinni á lokakafla fyrri hálfleiks."
Í stöðunni 3-1 og um hálftími eftir af leiknum fékk Sindri Björnsson, ungur miðjumaður Leiknis, beint rautt spjald.
„Þá er þetta náttúrulega orðinn allt annar leikur og við 3-1 yfir. Við spiluðum klassíska 6-0 handboltavörn og lokuðum. Ungur strákur lætur veiða sig í vitleysu og hann lærir af því. Við ákváðum að líta á þetta jákvæðum augum og nýta þetta sem æfingu."
Dánjal Á Lakjuni skoraði tvö af mörkum Leiknis en sá færeyski var að leika sinn fyrsta leik fyrir félagið í móti.
„Hann er djöfulli seigur og kemur sér alltaf í færi. Við erum ánægðir með hann. Hann var mjög þreyttur, fannst heita loftið í Egilshöllinni eitthvað skrítið og ekki í leikformi. 60 mínútur hjá honum var alveg nóg."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.






















