ÍBV tapaði 2-1 gegn FH á Hásteinsvelli á Þjóðhátíð. Eiður Aron spilaði vel í vörn ÍBV í dag og var að vonum mjög svekktur með úrslit leiksins.
,,Þetta er hundfúlt, við erum mikið etri og ég veit ekki hvað við erum mikið með boltann en við getum bara ekki skorað meira en eitt mark það er bara þannig".
,,Við ætluðum bara að vinna, ekkert flóknara en það, ef við ætlum ekki að fara að dragast aftur úr þá verðum við að fara að hirða stig og það er bara ekkert að gerast núna, það er bara eina sem við þurfum að laga".
Það hefur gengið brösulega hjá ÍBV að skora í sumar og var sama upp á teningnum í dag.
,,Bara færanýtingu, það gengur ekki að skora eitt mark í hverju leik, okkur er bara refsað fyrir það".






















