Í tilefni Gluggadagsins var tekinn upp sérstakur aukaþáttur af útvarpsþætti Fótbolta.net sem hægt er að hlusta á í spilaranum hér að ofan. Þátturinn er um 40 mínútur að lengd.
Þar fara Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson yfir stærstu tíðindin í glugganum og ræða einnig við Tryggva Pál Tryggvason, stuðningsmann Manchester United, og Einar Guðnason, stuðningsmann Arsenal.
Farið er yfir helstu fréttirnar á lokadegi gluggans, sumarkaup toppliða enska boltans og þá íslensku leikmenni sem voru í umræðunni.
























