Bayer Leverkusen í Þýskalandi fylgist náið með gangi mála hjá Fabian Hürzeler í Brighton, sem á rúmt ár eftir af samningi við úrvalsdeildarfélagið.
Sky í Þýskalandi greinir frá þessu og segir Leverkusen vera byrjað að skoða í kringum sig varðandi þjálfaramál.
Stjórnendur félagsins eru ekki sérstaklega hrifnir af gengi liðsins undir stjórn hins danska Kasper Hjulmand sem tók við af Erik ten Hag í september, eftir að Ten Hag entist aðeins þrjá keppnisleiki við stjórnvölinn.
Hurzeler er meðal efstu manna á óskalista Leverkusen en Sebastian Hoeness, Sandro Wagner og Cesc Fábregas hafa einnig verið nefndir til sögunnar.
Hjulmand hefur lítinn tíma til að sannfæra stjórnendur um að skipta sér ekki út. Leverkusen er fjórum stigum frá meistaradeildarsæti í þýsku deildinni með 46 stig eftir 27 umferðir og mætir stórveldi FC Bayern í undanúrslitum þýska bikarsins í seinni hluta apríl.
Leverkusen er án sigurs í fimm síðustu leikjum í öllum keppnum og þarf Hjulmand að snúa slæmu gengi við sem fyrst.
21.03.2026 21:32
Hürzeler: Viljum skapa alvöru virki
Athugasemdir




