Manchester United ætlar óvænt að reyna að fá enska vinstri bakvörðinn Myles Lewis-Skelly frá Arsenal
banner
   mán 23. mars 2026 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Milner: Get líklega spilað í nokkur ár í viðbót
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: EPA
James Milner er orðinn leikjahæsti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar og telur þessi fertugi fótboltamaður sig ennþá eiga nokkur ár inni.

Milner er mjög jákvæður þrátt fyrir hækkandi aldur og erfið meiðsli sem héldu honum frá keppni í níu mánuði á síðustu leiktíð.

„Hver veit hversu lengi ég get spilað áfram? Hlutir breytast mjög fljótt í fótbolta, sérstaklega þegar maður er komnin á ákveðinn aldur. Miðað við hvernig mér líður núna þá get ég líklega spilað í nokkur ár í viðbót," sagði Milner í viðtali við BBC.

„Mér líður eins og ég sé ennþá með metnaðinn sem þarf til að spila á þessu gæðastigi en þetta veltur ekki bara á mér, þetta veltur líka á því hvort liðið hefur þörf á mér eða ekki."

En hefur Milner áhuga á því að gerast fótboltaþjálfari?

„Suma daga hugsa ég að þetta gæti verið eitthvað sem ég yrði góður í en aðra daga þá sér maður hversu erfitt þetta starf er. Eins og fótboltinn virkar í dag þá fá þjálfarar sjaldnast tíma til að hafa veruleg áhrif á liðin sem þeir stýra.

„Ég hef öðlast mikla reynslu eftir að hafa lært af Jürgen Klopp og svo þegar ég meiddist hérna í fyrra. Þjálfarinn leyfði mér að vera mikið með í undirbúningi og þjálfun og ég lærði ýmislegt."


   21.02.2026 15:10
Milner bætti met Barry - Leikjahæstur í sögu ensku úrvalsdeildarinnar

Athugasemdir
banner
banner
banner