The Times greinir frá því að stjórnendur Tottenham séu byrjaðir að hallast að því að reyna að ráða inn framtíðarstjóra félagsins sem fyrst.
Áformið var að ráða inn bráðabirgðastjóra út tímabilið og snúa sér að framtíðarstjóra í sumar en eftir misheppnaða byrjun Igor Tudor gætu stjórnendur skipt um skoðun.
Stjórnendur hafa núna rúma viku til þess að taka stóra ákvörðun varðandi framtíð Tottenham sem er óvænt í fallbaráttu þegar sjö umferðir eru eftir af enska úrvalsdeildartímabilinu.
Búist er við því að Tudor verði rekinn eftir þriggja marka tap á heimavelli gegn Nottingham Forest í fallbaráttuslag um helgina. Tilkynningin mun þó ekki berast á næstu dögum í ljósi andláts Mario Tudor, föðurs Igor.
Hingað til hafa fjölmiðlar sagt að Roberto De Zerbi, ítalski þjálfarinn sem er efstur á óskalista Tottenham, sé ekki reiðubúinn til að taka við félaginu fyrr en eftir tímabilið og eingöngu ef Spurs tekst að bjarga sér frá falli.
Telegraph greindi frá því í gær að stjórnendur Tottenham væru búnir að ræða við De Zerbi um að taka mögulega við þjálfarastarfinu eftir tímabilið, en samkvæmt Times eru stjórnendur spenntari fyrir því að ráða inn þjálfara á næstu vikum frekar en að bíða með það.
De Zerbi er sagður vera efstur á óskalista Tottenham en félagið hefur einnig áhuga á Mauricio Pochettino og Andoni Iraola, sem eru samningsbundnir bandaríska landsliðinu og Bournemouth. Á sama tíma er De Zerbi er frjáls ferða sinn eftir að dvöl hans hjá Marseille endaði fyrr en búist var við síðasta febrúar.
23.03.2026 19:00
De Zerbi klár í starfið ef Tottenham heldur sér uppi
Athugasemdir



