Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   mán 23. mars 2026 00:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hjörtur kallaður inn í landsliðshópinn
Eimskip
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hjörtur Hermannsson hefur verið kallaður inn í landsliðshópinn fyrir æfingaleiki gegn Kanada og Haíti.

Hann kemur inn í hópinn fyrir Daníel Leó Grétarsson sem meiddist í leik með Sonderjyske gegn Nordsjælland í dönsku deildinni í dag.

Hjörtur er 31 árs gamall miðvörður en hann hefur spilað 28 landsleiki og skorað eitt mark. Hann var með Volos í grísku deildinni í kvöld sem vann PAOK 2-1.

Ísland mætir Kanada og Haíti 28. og 31. mars en báðir leikirnir fara fram í Toronto í Kanada.


Slapp
banner
banner
banner