Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
banner
   þri 24. mars 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ellen semur við HK
Kvenaboltinn
Mynd: HK
Unglingalandsliðskonan Ellen Björnsdóttir er búin að skrifa undir sinn fyrsta samning við meistaraflokk HK en hún er fædd árið 2010.

Ellen er gríðarlega efnileg og gerir þriggja ára samning við uppeldisfélagið. Hún hefur verið hluti af æfingahópi meistaraflokks kvenna í vetur og tekið þátt í æfingaleikjum ásamt því að spila sinn fyrsta meistaraflokksleik í Lengjubikarnum.

Hún hefur verið partur af síðustu æfingahópum U16 ára landsliðsins og getur búist við að byrja að keppa á þróunarmótum UEFA þegar hún tekur stökkið upp í næsta aldursflokk.

„Við erum spennt að fylgjast með Ellen á komandi árum í HK. Til hamingju með samninginn þinn Ellen," segir meðal annars í tilkynningu frá HK.


Slapp
banner
banner