Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
banner
   mán 23. mars 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Leikmenn Brentford lentu í blóðugum slagsmálum
Mynd: EPA
Tveir ónefndir leikmenn Brentford lentu í blóðugum slagsmálum þegar þeir voru á leið heim eftir markalaust jafntefli gegn Leeds um helgina.

Þeir urðu vitni af slagsmálum og skárust í leikinn til að hjálpa einum aðila. Talið er að ráðist hafi verið á hann vegna kynþáttar.

Mennirnir hjálpuðu til við að róa ástandið áður en lögreglan kom á vettvang, en hvorugur þeirra slasaðist.

Hins vegar sagði vitni að þeir hefðu verið blóðugir eftir atvikið sem átti sér stað í Suðvestur Lundúnum.
Slapp
banner