Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mán 23. mars 2026 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Þetta er í höndum Arsenal"
Mynd: EPA
Manchester City vann Arsenal í úrslitum deildabikarsins í gær en liðin eru einnig í harðri baráttu um Englandsmeistaratitilinn.

Arsenal er með níu stiga forystu þegar sjö leikir eru eftir en Man City á þó leik til góða. Liðin mætast síðan þann 19. apríl.

Pep Guardiola er feginn að það sé komið að landsleikjahléinu en hann segir að liðið þurfi að hugsa um einn leik í einu.

„Ég myndi dýrka að vera níu stigum á undan þeim til að vera hreinskilinn. Þetta er í þeirra höndum, persónulega þarf ég gott frí. Ég er dauðþreyttur. Eftir það tökum við þetta skref fyrir skref. Það var mjög dýrt að tapa stigum gegn West Ham," sagði Guardiola.
Slapp
banner
banner
banner