Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   mán 23. mars 2026 15:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Algjör lykilmaður framlengir við FH
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við FH og mun spila með liðinu í Bestu deildinni í sumar.

Miðjumaðurinn sneri aftur í FH um mitt síðasta tímabil og hjálpaði því að enda í 2. sæti í Bestu deildinni. FH endaði líka í 2. sæti í Mjólkurbikarnum.

Hún er fædd árið 1996 og á að baki 15 A-landsleiki og tvö landsliðsmörk. Þrjá þeirra spilaði hún á síðasta tímabili.

„Við hlökkum til að sjá Andreu áfram í FH-treyjunni í sumar!" segir í tilkynningu FH.

Andrea hefur spilað með Breiðabliki, Le Havre í Frakklandi, Houston Dash og Tampa Bay í Bandaríkjunum , Club America og Mazatlan í Mexíkó og FH á sínum ferli.
Slapp
banner
banner
banner