Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
   sun 22. mars 2026 21:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Albert átti þátt í jöfnunarmarkinu gegn toppliðinu
Mynd: EPA
Fiorentina 1 - 1 Inter
0-1 Pio Esposito ('1 )
1-1 Cher Ndour ('77 )

Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Fiorentina þegar liðið náði í sterkt stig gegn toppliði Inter í ítölsku deildinni í kvöld.

Francesco Pio Esposito kom Inter yfir eftir aðeins 40 sekúndna leik eftir vandræðagang í vörn Fiorentina.

Fiorentina var með yfirhöndina í seinni hálfleik. Liðið náði að jafna metin þegar Albert átti skot sem Yann Sommer varði út í teiginn og Cher Ndour var fljótur að átta sig og skoraði á opið markið.

Jafntefli var niðurstaðan og Fiorentina er í 16. sæti með 29 stig, tveimur stigum frá fallsæti en Inter er áfram á toppnum með 69 stig, sex stigum á undan grönnum sínum í Milan.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 30 22 3 5 66 24 +42 69
2 Milan 30 18 9 3 47 23 +24 63
3 Napoli 30 19 5 6 46 30 +16 62
4 Como 30 16 9 5 53 22 +31 57
5 Juventus 30 15 9 6 52 29 +23 54
6 Roma 30 17 3 10 40 23 +17 54
7 Atalanta 30 13 11 6 41 27 +14 50
8 Lazio 30 11 10 9 31 28 +3 43
9 Bologna 30 12 6 12 38 36 +2 42
10 Sassuolo 30 11 6 13 36 40 -4 39
11 Udinese 30 11 6 13 35 42 -7 39
12 Parma 30 8 10 12 21 38 -17 34
13 Genoa 30 8 9 13 36 42 -6 33
14 Torino 30 9 6 15 34 53 -19 33
15 Cagliari 30 7 9 14 31 42 -11 30
16 Fiorentina 30 6 11 13 35 44 -9 29
17 Cremonese 30 6 9 15 25 44 -19 27
18 Lecce 30 7 6 17 21 40 -19 27
19 Verona 30 3 9 18 22 52 -30 18
20 Pisa 30 2 12 16 23 54 -31 18
Athugasemdir
banner