Manchester United ætlar óvænt að reyna að fá enska vinstri bakvörðinn Myles Lewis-Skelly frá Arsenal
   mán 23. mars 2026 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Dortmund í viðræðum við Sancho
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sky í Þýskalandi greinir frá því að stórveldið Borussia Dortmund sé í viðræðum við umboðsteymið hjá enska kantmanninum Jadon Sancho.

Sancho, sem á 26 ára afmæli í vikunni, verður samningslaus eftir tímabilið eftir fimm afar misheppnuð ár hjá Manchester United sem borgaði 73 milljónir punda til að kaupa leikmanninn úr röðum Dortmund.

Sancho fékk risastóran samning hjá Man Utd en stóðst engan veginn væntingarnar sem til hans voru gerðar. Hann var lánaður aftur til Dortmund í janúar 2024 og lék svo á láni hjá Chelsea á síðustu leiktíð.

Samkomulaginu við Chelsea fylgdi kaupskylda upp á 25 milljónir punda, en Lundúnafélagið borgaði 5 milljónir til að losna undan þeirri skyldu eftir að Sancho mistókst að hrífa þjálfarateymið.

Sancho, sem lék 23 landsleiki fyrir England frá 2018 til 2021 og hjálpaði liðinu til silfurverðlauna á EM 2020, leikur á láni hjá Aston Villa og er nýlega byrjaður að sýna flotta takta eftir slaka byrjun á dvöl sinni hjá félaginu.

Villa er talið vera áhugasamt um að semja við Sancho en er ekki talið vera tilbúið að mæta launakröfum hans.

   19.03.2026 08:00
Verður draumur Sancho að veruleika?

Athugasemdir
banner