Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
banner
   sun 22. mars 2026 22:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn: Trent refsað fyrir að mæta of seint en lagði upp sigurmarkið
Mynd: EPA
Real Madrid fékk Atletico Madrid í heimsókn í spænsku deildinni í kvöld. The Athletic greinir frá því að Alvaro Arbeloa hafi bekkjað Trent Alexander-Arnold þar sem enski bakvörðurinn hafði mætt seint á æfingu liðsins.

Ademola Lookman sá til þess að Atletico var með 1-0 forystu í hálfleik. Vinicius Junior jafnaði metin með marki úr vítaspyrnu snemma í seinni hálfleik og stuttu síðar kom Federico Valverde Real yfir.

Alexander-Arnold kom inn á sem varamaður eftir rúmlega klukkutíma leik en stuttu síðar jafnaði Nahuel Molina metin fyrir Atletico.

Vinicius Junior tryggði Real Madrid stigin þrjú þegar hann skoraði með góðu skoti við vítateiginn eftir sendingu frá Alexander-Arnold.

Real Madrid spilaði manni færri þegar Valverde fékk að líta rauða spjaldið fyrir að sparka aftan í Alex Baena þegar tæplega stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma.

Atletico tókst ekki að nýta sér liðsmuninn og Real fór með sigur af hólmi.

Bilbao vann sterkan sigur á Real Betis og heldur sér í baráttunni um Evrópusæti. Þá vann Alaves ótrúlegan endurkomusigur á Celta Vigo eftir að hafa lent þremur mörkum undir.

Athletic 2 - 1 Betis
1-0 Dani Vivian ('25 )
2-0 Oihan Sancet ('45 )
2-1 Pablo Fornals ('75 )

Celta 3 - 4 Alaves
1-0 Ferran Jutgla ('19 )
2-0 Hugo Alvarez Antunez ('27 )
3-0 Ferran Jutgla ('37 )
3-1 Toni Martinez ('45 )
3-2 Angel Perez ('50 )
3-3 Toni Martinez ('74 )
3-4 Abde Rebbach ('78 )

Real Madrid 3 - 2 Atletico Madrid
0-1 Ademola Lookman ('33 )
1-1 Vinicius Junior ('52 , víti)
2-1 Federico Valverde ('55 )
2-2 Nahuel Molina ('66 )
3-2 Vinicius Junior ('72 )
Rautt spjald: Federico Valverde, Real Madrid ('77)
Athugasemdir
banner
banner
banner