Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
banner
   þri 24. mars 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Þrír með 13 rétta fyrir landsleikjagluggann
Mynd: Íslenskar getraunir
Þrír tipparar voru með 13 rétta á enska getraunaseðlinum um helgina, í síðustu umferð fyrir landsleikjahlé.

Einn tippari fékk 500 þúsund krónur í vinning og notaði kerfi þar sem hann þrítryggði 10 leiki og setti eitt merki á þrjá leiki.

Tveir fengu 700 þúsund krónur fyrir að vera með 13 rétta og aukavinninga. Þeir tippuðu á opinn seðil með tveim þrítryggðum leikjum og sjö tvítryggðum.

Tippararnir eru stuðningsmenn Fram, Hattar og Sindra.
Slapp
banner