Hinn árlegi leikur um Samfélagsskjöldinn, þar sem bikarmeistararnir leika gegn Englandsmeisturunum, verður spilaður í Cardiff þetta árið þar sem Wembley leikvangurinn í Lundúnum er bókaður fyrir kanadísku poppstjörnuna The Weeknd.
Leikurinn mun fara fram þann 16. ágúst og verður spilaður á The Principality leikvangnum sem áður var kallaður Þúsaldarvöllurinn.
Leikurinn um Samfélagsskjöldinn var spilaður á þeim leikvangi milli 2001 og 2006 þegar endurbygging á Wembley stóð yfir.
Opnunarleikur EM 2028 mun fara fram á vellinum en mótið verður haldið sameiginlega af Englandi, Írlandi, Skotlandi og Wales.
Crystal Palace vann Samfélagsskjöldinn 2025 eftir að hafa sigrað Liverpool í vítakeppni.
Athugasemdir


