KSÍ hefur tilkynnt að dregið verður í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins áður en 2. umferðin hefst.
Drátturinn fer fram í höfuðstöðvum KSÍ í hádeginu í dag en 2. umferð bikarsins hefst á fimmtudaginn áður en 32-liða úrslitin fara loks af stað 4. apríl.
Sterkustu lið Íslandsmótsins sem leika í Bestu deildinni munu mæta til leiks í 32-liða úrslitunum á meðan liðin úr Lengjudeildinni, nema ríkjandi bikarmeistarar Vestra, stíga strax á svið í 2. umferð.
Meistararnir ríkjandi eiga sinn fyrsta leik í 32-liða úrslitum.
Athugasemdir


