Gabriel Magalhaes, varnarmaður Arsenal, hefur dregið sig úr brasilíska landsliðshópnum vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í 2-0 tapi gegn Manchester City í úrslitaleik enska deildarbikarsins í gær.
Hann spilaði allan leikinn en kvartaði um verki í hægra hné eftir leik. Eftir læknisskoðun var ákvörðun tekin að hann skyldi ekki taka þátt í vináttuleikjum Brasilíu gegn Frakklandi og Króatíu.
Brasilíumenn munu ekki bæta nýjum leikmanni í hópinn í hans stað.

Gabriel er þriðji leikmaður Arsenal sem dregur sig úr landsliðsverkefnum þessa landsleikjaglugga vegna meiðsla. Eberechi Eze dró sig úr enska hópnum vegna kálfameiðsla og William Saliba vegna ökklameiðsla.